07.02. 12
Besta markaðsherferðin á Netinu 2011. Hver er uppáhaldsborgin þín?
Besta markaðsherferðin á Netinu 2011. Hver er uppáhaldsborgin þín?

Icelandair bar sigur úr býtum í úrslitum Íslensku vefverðalaunanna 2011 um bestu markaðsherferðina á Netinu. Það var herferðin Hver er uppáhaldsborgin þín? sem landaði verðlaununum fyrir Icelandair. TM Software sá um vefforittun og uppsetningu herðferðarinnar á Netinu og Íslenska auglýsingastofan sá um hönnun og heildarútlit.

Dómnefnd Íslensku vefverðlaunanna 2011 gaf herferðinni eftirfarandi umsögn:

Markaðsherferð þessari tókst að virkja samfélagsmiðlana á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Fólk á öllum aldri tók vel í þessa áskorun og viðbrögðin létu greinilega ekki á sér standa. Jafnframt er útfærsla vefsins mjög í takt við heildarútlit herferðarinnar á öðrum miðlum og útkoman skemmtileg fyrir þá sem síðuna sækja.

Það var borgarstjórinn í Reykjavík Jón Gnarr sem veitti fulltrúum Icelandair og TM Software verðlaunin við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíó þann 3. febrúar s.l. Nánar má lesa um úrslit Íslensku vefverðlaunanna 2011 á vef SVEF.

Við hjá TM Software erum stollt af því að hafa átt alls 3 af 5 tilnefningum í flokknum Besta markaðsherferðin á Netinu 2011.

Markaðsherferð Icelandair er aðeins eitt dæmi um verkefni á samfélagsmiðlum (e. social media) sem TM Software hefur útfært og tekið að sér á undanförnum mánuðum en önnur eru t.d. Inspired by Iceland, Mottumars, Hlaupastyrkur, Á meðan fæturnir bera mig og Facebook síður fyrir Öryggismiðstöðina og Landlækni svo eitthvað sé nefnt.