Markaðsátakið Inspired by Iceland vann ein eftirsóttustu auglýsingaverðlaun í Evrópu, Euro Effie. Hlaut hún bæði fyrstu verðlaun fyrir bestu herferðina og gullverðlaun fyrir bestu notkunin á samfélagsmiðlum. TM Software annaðist uppsetningu vefjar átaksins, sem stóð yfir sumarið 2010 og hafði að markmiði að vekja athygli á Íslandi sem áfangastað erlendra ferðamanna.
Frétt mbl.is um verðlaunin.
Á Inspired by Iceland vefsvæðinu geta einstaklingar hvaðanæva að deilt sögum sínum um Ísland og sett inn myndir og myndbönd tengd þeim. Heimsþekktir listamenn segja þar einnig frá kynnum sínum af landinu og áhrif þess á þá. Á síðunni geta notendur að auki fundið ýmsar upplýsingar tengdar ferðalögum til Íslands m.a. gistingu, menningu og listum og mat.
TM Software vann efni vefjarins í VYRE Unify vefumsjónarkerfi þar sem miklar kröfur voru gerðar til sveigjanleika og skalanleika. Kerfið er mjög öflugt til að halda utan um mikið af gögnum, líftíma gagna, útgáfustjórn og flókin tengsl milli ólíkra efnisflokka og hentar því fullkomlega fyrir vefsvæði eins og Inspired by Iceland.

