24.08.
11
Met var slegið í áheitasöfnun fyrir Reykjavíkurmaraþonið. Hátt í 44 milljónir króna söfnuðust en um 30 söfnuðust í fyrra. Söfnunin fór fram í gegnum áheitavef sem TM Software hefur þróað og hannað.
Áheitakerfið er þróað í WebMaster vefumsjónarkerfi, sem er íslenskur hugbúnaður frá TM Software. Á vefsvæðinu var hægt að heita á keppendur, hópa og einstaklinga, sem hlupu fyrir einstök góðferðarfélög. Einnig var hægt að heita á keppendur með því að senda SMS.
