16.08. 11

Nú fjórum dögum fyrir Reykjavíkurmaraþon hafa um 16 milljónir króna safnast í áheitasöfnuninni í tengslum við hlaupið.

Áheitakerfið er þróað í Webmaster vefumsjónarkerfi, sem er íslenskur hugbúnaður frá TM Software. Á vefsvæðinu var hægt að heita á keppendur, hópa og einstaklinga, sem hlupu fyrir einstök góðferðarfélög. Einnig var hægt að heita á keppendur með því að senda SMS.

Hátt í 30 mkr. söfnuðust í gegnum áheitavefinn í fyrra.